|
06.12.2005 18:32:29 / Fjalar
Haukum hefur ekki gengið sem skildi í vetur og má eiginlega segja
að þetta sé til háborinnar skammar. Aðeins hefur einn sigur náðst í
deildinni í vetur og einn í bikar samtals tveir í 11 leikjum.
Haukar eiga svo leik gegn KFÍ á sunnudaginn í bikarnum og heimta
stuðningsmenn sigur.
Meistaraflokki kvenna og Haukum B gengur hinsvegar allt í haginn og
sitja bæði þessi lið á toppnum. Mfl kvk í 1. deildinni og Haukar B
í riðlinum sínum í 2. deildinni.
Stelpurnar spila gegn Kef í Powerate bikarnum á laug. og Haukar B
mæta Grindavík í 32- liða úrslitum í bikarnum
Smá innlegg.
Seinna
»
03.05.2005 12:50:29 / Fjalar
Fjalarsmaður vikunnar að þessu sinni er hin gífurlega snjalli
körfuknattleiksmaður, Jón Arnór Stefánsson.
Jón Arnór varð með liði sínu, Dynamo St. Petersburg,
Evrópumeistari. Jón Arnór er fyrsti íslenski leikmaðurinn sem
verður Evrópumeistari og er hann vel að þessum titli kominn.
Jón spilaði í 29 mínútur og skoraði 9 stig. En hann og félagar hans
unnu leikinn með miklum yfirburðum og fóru taplaust í gegnum
úrslitakeppnina.

Heimasíða KR tók viðtal við Jón og það er
hægt að finna hér
Fjalar óskar Jóni til hamingju með titilinn og nafnbótina.
»
03.05.2005 12:35:46 / Fjalar
Þing KKÍ var haldið síðustu helgi og var margar tillögur teknar
fyrir. Það sem stóð hvað helst upp úr var það að fjöldi "kana" á
næsta ári hafa verið fækkaðir niður í 1 leikmann á lið. Einnig
hefur launaþakið lækkað úr 500 þús í 400 þús.
Eins og alþjóð veit hefur Fjalar staðið fyrir skoðunarkönnun um
hversu marga kana á að hafa á næstu leiktíð og eru úrslitin hér
fyrir neðan.
»
25.04.2005 02:54:06 / Fjalar
Fjalarsmaður vikunnar að þessu sinni er Helena Sverrisdóttir en
hún var valin besti leikmaður 1. deildar kvenna á lokahófi
KKÍ nú á dögunum. Hún er yngsti leikmaðurinn frá upphafi til
að hljóta þessa tilnefningu. Var hún einnig í liði ársins ásamt
þeim Bryndísi Guðmundsdóttur og Birna Valgarðsdóttir úr Keflavík
og Öldu Leif Jónsdóttur og Signý Hermannsdóttur úr ÍS.
Fjalar óskar Helenu og öðrum Haukamönnum sem unnu til
verðlauna á lokahófi KKÍ. Sævar Haraldsson(Lið ársins í
Intersportdeildinni), Pálína Gunnlaugsdóttir(Varnarmaður ársins í
1. deild kvk) og Ágúst Björgvinsson(Þjálfari ársins 1. deild
kvk).
»
24.04.2005 23:32:47 / Fjalar
Nú lýður ekki að löngu þar til að undanúrslit
Evrópudeildarinnar fari fram. Leikirnir verða spilaðir á
miðvikudaginn næstkomandi eða þann 27. apríl.
Jón Arnór og félagar í Dynamo St.Petersburg mæta BC Khimki kl.
17:45 og svo seinna um kvöldið eða kl. 20:00 mætast BC Kyiv og
Fenerbahce.
Annars er það af Jóni að frétta að þeir félagar léku æfingarleik
við Maccabi Tel Aviv í Ísrael og tapaðist sá leikur 110-91. Jón
setti ein 14 kvikindi.
Liðin mætast öðru sinni nú í kvöld en þetta er partur af
undirbúningi fyrir leikina á miðvikudaginn.

Jón Arnór í fíling.
»
23.04.2005 19:44:45 / Fjalar
Já góðir hálsar lokahóf KKÍ
var haldið með pompt og prakt (or something) þar sem öll
körfuknattleiksflóran var samankomin til að skemmta sér. Að
sjálfsögðu voru leikmenn og þjálfarar verðlaunaðir og svona
raðaðist þetta niður.
VERÐLAUNAHAFAR Á
LOKAHÓFI KKÍ 2005
Besta vítanýting í 1. deild kvenna
Alda Leif Jónsdóttir ÍS 88,8%
Besta vítanýting í Intersport-deild Jeb Ivey Fjölnir 90,3%
Besta nýting úr 3ja stiga skotum í 1.d.kv. Reshea Bristol Keflavík
44%
Besta nýting úr 3ja stiga skotum í Intersp. Jeb Ivey Fjölnir
43,3%
Flest stig í 1. deild kv. Helena Sverrisdóttir Haukar
22,8
Flest stig í Intersport-deild Joshua Helm KFÍ 37,2
Flest fráköst í 1. deild kvenna Signý Hermannsdóttir ÍS 13,8
Flest fráköst í Intersport-deild George Byrd Skallag 16,2
Flest varin skot í 1. deild kvenna Signý Hermannsdóttir ÍS 3,1
Flest varin skot í Intersport-deild Friðrik Stefánsson UMFN 2,7
Flestir stolnir boltar í 1.d.kv. Reshea Bristol Keflavík 6,8
Flestir stolnir boltar í Intersport-deild Nick Bradford Keflavík
4,1
Flestar stoðsendingar í 1.d.kv. Reshea Bristol Keflavík 7,8
Flestar stoðsendingar í Intersport-deild Bethuel Fletcher Tindast.
8,2
Vefsíða ársins KR
Besti dómari Intersport-deild Sigmundur Már Herbertsson UMFN
Besti þjálfari 1. d. kv. Ágúst S. Björgvinsson
Haukar Besti þjálfari Intersport-deild Benedikt
Guðmundsson Fjölnir
Besti erl. leikm 1. d. kv. Reshea Bristol Keflavík
Besti erl. leikm. í Intersport-deild Joshua Helm KFÍ
Besti varnarmaðurinn í 1.d.kv. Pálína Gunnlaugsdóttir
Haukar Besti varnarmaðurinn í Intersport-deild Friðrik
Stefánsson UMFN
Prúðasti leikmaðurinn í 1. deild kv. Sólveig Gunnlaugsdóttir
UMFG
Prúðasti leikmaðurinn í Intersport-deild Lárus Jónsson KR
Úrvalslið-lið 1. deildar kvenna Alda Leif
Jónsdóttir ÍS
Helena Sverrisdóttir Haukar
Bryndís Guðmundsdóttir Keflavík
Birna Valgarðsdóttir Keflavík
Signý Hermannsdóttir ÍS
Úrvalslið Intersport-deildar
Sævar Haraldsson Haukar Magnús Þór Gunnarsson
Keflavík
Sigurður Þorvaldsson Snæfell
Hlynur Bæringsson Snæfell
Friðrik Stefánsson UMFN
Besti ungi leikmaðurinn í 1. d. kv. Bryndís Guðmundsdóttir
Keflavík
Besti ungi leikmaðurinn í Intersport-deild Brynjar Þór Björnsson
KR
Besti leikmaður 1. deildar kvenna Helena Sverrisdóttir
Haukar
Besti leikmaður Intersport-deildar Sigurður Þorvaldsson
Snæfell

Helena og Sigurður með verðlaunagripi sína
Mynd og upplýsingar www.kki.is
»
19.04.2005 02:51:15 / Stebbi
Atkvæðagreiðslu er lokið í stóru könnun KKDÍ og eiga Haukar
nokkra fulltrúa í henni.
Intersportdeildin
Besti ungi
leikmaðurinn
|
1. |
Brynjar Þ.
Björnsson |
KR |
103 |
(13) |
|
2. |
Sævar I.
Haraldsson |
Haukar |
95 |
(14) |
|
3. |
Guðmundur
Jónsson |
Njarðvík |
59 |
(7) |
Prúðasti
leikmaðurinn
|
1. |
Sverrir Þór
Sverrisson |
Keflavík |
36 |
(5) |
|
2. |
Sævar Ingi
Haraldsson |
Haukar |
30 |
(5) |
|
2. |
Páll
Kristinsson |
Njarðvík |
30 |
(4) |
Sævar á möguleika á því að vera valinn Besti ungi leikmaðurinn
þriðja árið í röð á lokahófi KKÍ. Það yrði ótrúlegt afrek ef svo
yrði en Sævar sem hefur verið valinn það síðastliðinn tvö ár hefur
aldrei verið valinn það í könnun KKDÍ og gefur það vísbendingu um
3-peat.
1. deild kvenna
Besti íslenski
leikmaðurinn
|
1. |
Helena
Sverrisdóttir |
Haukar |
123 |
(20) |
|
2. |
Birna
Valgarðsdóttir |
Keflavík |
64 |
( |
|
3. |
Signý
Hermannsdóttir |
ÍS |
39 |
(3) |
Besti erlendi
leikmaðurinn
|
1. |
Reshea
Bristol |
Keflavík |
108 |
(14) |
|
2. |
Ebony
Shaw |
Haukar |
77 |
(9) |
|
3. |
Jerica
Watson |
KR |
46 |
(7) |
Besti íslenski
varnarmaðurinn
|
1. |
Pálína M.
Gunnlaugsdóttir |
Haukar |
57 |
(10) |
|
2. |
Birna
Valgarðsdóttir |
Keflavík |
55 |
(7) |
|
3. |
Helena
Sverrisdóttir |
Haukar |
32 |
(3) |
Besti erlendi
varnarmaðurinn
|
1. |
Reshea Bristol |
Keflavík |
88 |
(10) |
|
2. |
Ebony
Shaw |
Haukar |
86 |
(11) |
|
3. |
Vera
Janjic |
Njarðvík |
39 |
(2) |
Besti ungi
leikmaðurinn
|
1. |
Helena
Sverrisdóttir |
Haukar |
113 |
(20) |
|
2. |
Bryndís
Guðmundsdóttir |
Keflavík |
80 |
(7) |
|
3. |
María Ben
Erlingsdóttir |
Keflavík |
27 |
(2) |
Grófasti
leikmaðurinn
|
1. |
Gréta María Grétarsdóttir |
KR |
47 |
(6) |
|
2. |
Birna
Valgarðsdóttir |
Keflavík |
40 |
(6) |
|
3. |
Pálína M.
Gunnlaugsdóttir |
Haukar |
29 |
(4) |
Besti
þjálfarinn
|
1. |
Ágúst
Björgvinsson |
Haukar |
133 |
(23) |
|
2. |
Sverrir Þór
Sverrisson |
Keflavík |
95 |
(10) |
|
3. |
Unndór
Sigurðsson |
Keflavík |
34 |
(0) |
Lið
ársins
|
1. |
Haukar |
138 |
(21) |
|
2. |
Keflavík |
100 |
(10) |
|
3. |
ÍS |
24 |
(10) |
Haukar áttu fulltrúa í öllum flokkum nema Prúðasti leikmaðurinn.
Helena var valinn besti Íslenski leikmaðurinn, besti ungi
leikmaðurinn, og hún varð í 3. sæti sem besti varnarmaðurinn.
Pálína var valinn besti varnarmaðurinn og varð í þriðja sæti yfir
grófasta leikmanninn. Ebony Shaw var síðan í öðru sæti sem besti
erlendi leikmaðurinn og einnig sem besti erlendi varnarmaðurinn.
Ágúst þjálfari var valinn besti þjálfarinn og til að fullkomna
þetta voru Haukar valdir lið ársins.
Vonum að þetta endurspegli eitthvað lokahóf KKÍ og Fjalar á nú
von á því að Haukar vinni eitthvað þar. Annað væri skandall.
»
18.04.2005 18:43:46 / Fjalar
Úrslitin úr skoðunarkönnunni eru nú kunngjör og var fólk sammála um
það að Haukar myndu vinna fleiri en tvo Íslandsmeistaratitla. 5
titlar er niðurstaðan og það bara hið besta mál.
»
18.04.2005 04:01:51 / Stebbi
Fjalarsmaður vikunnar að þessu sinni eru Haukar-B og 10. flokkur kvk. Þessi lið urðu Íslandsmeistarar í dag. 10. fl. kvk. varð tvöfaldur meistari í vetur en þær urðu bikarmeistarar fyrr í vetur. Þetta er sannarlega glæsilegur árangur hjá þeim og vísbending um þá björtu framtíð sem kvennadeild Hauka á. Í Íslandsmeistaraliði Hauka í dag eru þrjár stelpur í U-16 ára landsliði Íslands, þær Unnur Tara, María Lind og Ragna Margrét. Haukar-B urðu Íslandsmeistarar í dag eftir sigur á Íslandsmeisturum KR-B. Haukar-B hafa keppt undanfarin þrjú ár í núverandi formi. Liðið er búið að vera meðal bestu liða allan tímann en aldrei orðið meistarar fyrr en í dag. 
Fjalar vill nota tækifærið og óska Haukum-B og 10. fl. kvenna til hamingju með titlana sína. Fjalar vill líka óska 7. fl. kvk. 9. fl. kvk. og unglingaflokki kvk. til hamingju með sína Íslandsmeistaratitla. Svo að lokum viljum við óska þjálfurum, leikmönnum, stjórn og öllum Haukamönnum með þennan glæsilega árangur í vetur. Haukar eignuðust 5 Íslandsmeistara og 3 bikarmeistara. Haukar unnu 8 titla í vetur sem er met. Árið 1981 og 2002 unnu Haukar 7 titla. Árið 2005 fer sannarlega í sögubækurnar. Stefán ritstjóri Fjalars
»
12.04.2005 11:52:42 / Fjalar
Haukar B eru komnir í úrslit B-liða en þeir tryggðu sér sæti í
úrslitum í gærkvöld er þeir mættu Fjölni B.
Haukar byrjuðu af krafti en hraður leikur Fjölnismanna henntaði
Haukaliðinu engan vegin og voru þeir undir í hálfleik, 51-45.
Í hálfleik lögðu Haukapjakkar upp hvað þeir ætluðu að gera í seinni
hálfleik og gekk það eftir. Haukar stjórnuðu hraðanum og spiluðu
skemmtilegan bolta sem skilaði þeim að lokum 15 stiga sigri,
81-96.
Steini var góður og skoraði ein 27 stig en Svenni kom fast á hæla
honum með 26 stig.
Haukar mæta annaðhvort Val eða KR en þessi lið leika á morgun í
Valsheimilinu.
Það er ljóst að Haukar ætla að sanka að sér verðlaunum þettað árið
en nú þegar eru þrjú gull komin í hús og tvö silfur.
»
11.04.2005 05:59:21 / Fjalar
Fjalarsmaður vikunnar að þessu sinni eru nokkrar stúlkur. Já það
er rétt 9. flokkur kvk. og Unglingaflokkur kvk. eru handhafar
heiðursins þessa vikuna. Báðir þessir flokkar urðu Íslandsmeistarar
um helgina. Stelpurnar í 9. flokki í fyrsta sinn og Unglingaflokkur
í þriðja sinn í röð minnir mig.
Allavega Fjalar óskar þeim til hamingju með allt saman.
9. fl. kvenna með mjög skemmtilega uppstillingu.

Unglingaflokkur aðeins hefðbundari á sinni

»
10.04.2005 19:16:52 / Fjalar
Unglingaflokkur kvenna tryggði sér í dag Íslandsmeistaratitilinn og
er þar með tvöfaldur meistari í ár. Þær eru nú verandi
Bikarmeistarar og er þetta annað árið í röð sem að þær vinna
tvöfallt.
Fjalar hefur ekki vitneskju hvernig leikurinn endaði eða hverjir
voru bestir en því verður hennt inn um leið og eitthvað
fréttist.
Fjalar vill óska unglingaflokki og 9. flokki kvenna til hamingju
með titlana í dag.
Á morgun spilar svo B-lið Hauka til undanúrslita gegn liði Fjölnis
í Grafarvogi.
»
10.04.2005 13:21:34 / Fjalar
Stúlkurnar í 9. flokki kvenna urðu fyrr í dag Íslandsmeistari í
körfuknattleik. Stúlkurnar sigruðu Grindavík 39-34 og er þetta í
fyrsta skiptið sem að Haukastúlkur sigra Grindavík.
Ragna Margrét var virkilega sterk í leiknum og skoraði 12 stig og
tók 21 frákast. Klara Guðmunds var einnig með 12 stig.
Fjalar óskar stúlkunum innilega til hamingju með titilinn.
Seinna í dag mætir svo unglingaflokkur liði Keflavíkur í
úrslitum.
»
10.04.2005 06:56:51 / Stebbi
Keflavík varð í dag Íslandsmeistari í mfl. kk. En kvennalið
félagsins varð Íslandsmeistari fyrr í vikunni. Sannarlega
glæsilegur árangur þar á ferð.
Síðan eru 9. fl. kvenna og Unglingaflokkur kvenna að spila til
úrslita á morgun. Gangi þeim vel.
Fjalar óskar Keflavík(hljómar einkennilega) til hamingju með
titlana og vonar að Haukastelpum gangi vel á morgun.
Áfram Haukar
»
08.04.2005 17:59:57 / Fjalar
Nú um helgina koma 9. flokkur kvenna og unglingaflokkur kvenna til
með að spila í undanúrslitum Íslandsmótsins. 9. flokkur kvenna
spilar gegn Snæfelli kl 10:00 á laugardeginum og síðar sama dag eða
kl 18:00 mætir unglingaflokkur Njarðvík.
Vinnist þessir leikir koma liðin til með að spila til úrslita á
sunnudaginn.
»
Síður: 1 2 3 ... 6
|